Fotbolti.net
04.02.22 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vigdís Edda í Þór/KA (Staðfest)

Vigdís Edda í Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Þór/KA

Kvennaboltinn
Vigdís Edda Friðriksdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Þór/KA eftir að hafa spilað 35 keppnisleiki á tveimur árum hjá stórliði Breilabliks, þar á meðal voru sex leikir í Meistaradeild Evrópu.
Vigdís Edda er fædd 1999 og var lykilmaður á miðju Tindastóls áður en hún skipti til Kópavogs fyrir tveimur árum.

Perry Mclachlan og Jón Stefán Jónsson, þjálfarar Þórs/KA, eru ánægðir með að ná Vigdísi Eddu norður.

„Hún er frábær viðbót við hópinn og ég er virkilega spenntur að vinna með henni. Við vitum hvers konar gæðum hún býr yfir og búumst við að hún smellpassi við hópinn hér," sagði Perry í samtali við heimasíðu Þórs/KA.

„Ég er gífurlega ánægður með að fá Vigdísi í Þór/KA. Við þekkjumst vel frá því ég þjálfaði hana í Tindastóli og þarna fer stelpa sem getur náð ofboðslega langt og styrkir okkar hóp mikið. Hún mun smellpassa í hópinn okkar bæði sem leikmaður og karakter. Svo ég tali nú ekki um hve vel hún hentar í leikstíl liðsins," sagði Jón Stefán.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.