Fotbolti.net
04.02.23 - 15:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Jói Berg lagði upp í níunda sigrinum í röð

Championship: Jói Berg lagði upp í níunda sigrinum í röð
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley er á svakalegu flugi í Championship deildinni en liðið vann níunda leik sinn í röð í deildinni í dag.

Jóhann Berg Guðmundsson skrifaði undir nýjan samning við félagið á dögunum en hann var í byrjunarliðinu í dag.

Burnley var einu marki yfir í hálfleik en Vitinho tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik, aðeins nokkrum sekúndum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann skallaði fyrirgjöf frá Jóhanni Berg í netið.

Hjalmar Ekdal gulltryggði 3-0 sigur Burnley stuttu síðar.

Burnley er með sjö stiga forystu á Sheffield United á toppi deildarinnar en Sheffield missteig sig á sama tíma þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Rotherham.

Norwich 0 - 3 Burnley
0-1 Anass Zaroury ('8 )
0-2 Vitinho ('54 )
0-3 Hjalmar Ekdal ('60 )

Rotherham 0 - 0 Sheffield Utd

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea11+823
2West Ham11+1822
3Middlesbrough11+622
4Birmingham11+920
5West Brom11+320
6Stoke City11+219
7Southampton11+1117
8Wolves10+317
9QPR11+317
10Blackburn11+115
11Sheffield Utd11+115
12Millwall11015
13Portsmouth10014
14Wrexham11-114
15Bolton11-314
16Bristol City11-314
17Charlton Athletic11-514
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich11-49
22Burnley11-58
23Derby County11-116
24Preston NE11-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.