Fotbolti.net
Er 40 stiga reglan ekkert nema gömul mýta?

19.10.26

Er 40 stiga reglan ekkert nema gömul mýta?

ÍVAR BJÖRGVINSSON

Það er gjarnan talað um að lið þurfi að ná í 40 stig til að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni og hafa þjálfarar og sparkspekingar lengi notað þá tölu sem ákveðið viðmið í fallbaráttunni. Það er þó ansi misjafnt hversu mörg stig hafa í raun þurft til að bjarga sér frá falli en á síðasta tímabili féll West Ham með 39 stig á meðan Tottenham hélt sæti sínu með 41 stigi. Árið áður féll Leicester hins vegar í 18. sætinu með aðeins 25 stig og því gríðarlegur munur á þessum tveimur tímabilum.

Því er tilvalið að skoða hversu mörg stig þurfi í raun og veru til að halda sæti sínu. Við ætlum því að fara yfir fallbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni frá stofnun hennar árið 1992, skoða hvernig stigafjöldinn hefur þróast og hvort hin fræga 40 stiga regla standist yfirhöfuð skoðun.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.