Fotbolti.net
19.10.26 - 13:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Frost í kortunum og FH með varaáætlun

Kaplakrikavöllur er annar af þremur grasvöllum í Bestu deild karla.

Kaplakrikavöllur er annar af þremur grasvöllum í Bestu deild karla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á laugardag mun lokaumferðin í Bestu deildinni fara fram. Allir sex leikirnir munu hefjast á sama tíma, klukkan 14:00. Miðað við veðurspána á að kólna þegar líður á vikuna og bæði á föstudag og laugardag er spáð frosti í Hafnarfirði.

Þar mun annar af tveimur grasleikjum umferðarinnar að öllu óbreyttu fara fram. Aðeins hlýrra verður á Akranesi þar sem hinn grasleikurinn fer fram.
FH tekur á móti Þór í leik sem skiptir öllu máli fyrir Þór í fallbaráttunni en FH er öruggt með sæti sitt í deildinni. Á Akranesi tekur ÍA á móti Keflavík.

„Við fylgjumst með spánni, hún er ekki stórkostleg og hefur versnað undanfarna daga. Við sjáum almennilega á miðvikudaginn hvernig þetta lítur út. Við munum væntanlega setja dúk yfir völinn á morgun. Eins og staðan er núna reikna ég ekki með öðru en að völlurinn verði spilhæfur. Það er alveg á hreinu að svona mikilvægur leikur mun ekki fara fram í aðstæðum sem ekki eru við hæfi. Ef spáin helst óbreytt þá teljum við að það verði hægt að spila á Kaplakrikavelli á laugardag, með því að setja dúkinn á völlinn í vikunni," segir Davíð Þór Viðarsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá FH.

Eruð þið með eitthvað varaplan?

„Já, við myndum alltaf græja það. Ég er í sambandi við eitt félag út af því. Þessi leikur verður að fara fram við boðlegar aðstæður. KSÍ eða dómarinn myndu ekkert samþykkja að spila leik á velli sem er frosinn," segir Davíð.

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er varaplan Skagamanna að leikur ÍA og Keflavíkur fari fram í Akraneshöllinni og eru víst yfirgnæfandi líkur á því að spilað verði í höllinni á laugardag.

Lokaumferðin - laugardagur 24. október
Besta karla - Efri hluti
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (ELKEM völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Það er líka gras á vellinum á Akranesi en það stefnir í að farið verði í framkvæmdir þar í vetur og lagt gervigras.

Það er líka gras á vellinum á Akranesi en það stefnir í að farið verði í framkvæmdir þar í vetur og lagt gervigras.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.