Fotbolti.net
19.10.26 - 12:52
Elvar Geir Magnússon

Wiegman stýrir Englandi á næstu tveimur stórmótum

Wiegman stýrir Englandi á næstu tveimur stórmótum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Sarina Wiegman hefur framlengt samning sinn sem landsliðsþjálfari Englands framyfir EM 2029. Fyrri samningur hennar átti að renna út eftir HM á næsta ári.

Hin hollenska Wiegman hefur stýrt Englandi til sigurs á síðustu tveimur Evrópumótum.
„Ég er svo ánægð að geta haldið áfram með þennan hóp og get ekki hugsað mér betra starf í fótboltanum,“ segir Wiegman.

England sigraði Grikkland 8-1 samanlagt í síðustu viku og tryggði sér sæti í annarri umferð umspilsins, þar sem liðið mætir Úkraínu. HM á næsta ári fer fram í Brasilíu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.