Fotbolti.net
19.10.26 - 17:33
Elvar Geir Magnússon

Ruðningsbolta sparkað af húsþaki inn á heimavöll Brentford

Ruðningsbolta sparkað af húsþaki inn á heimavöll Brentford
Canon

Mynd: EPA

Brentford segist vera að vinna með lögreglunni eftir hættulegt atvik þar sem ruðningsbolta var sparkað af húsþaki við leikvanginn meðan á leik liðsins gegn Liverpool stóð í ensku úrvalsdeildinni.

Myndband á samfélagsmiðlum, sem sjá má hér að neðan, sýnir mann sparka ruðningsbolta í átt að vellinum á meðan viðstaddir hlæja og fagna.

Í yfirlýsingu Brentford segir að um hættulegt athæfi verið að ræða og verið sé að vinna í því að bera kennsl á þá sem bera ábyrgð. Öryggi fólks á leikjum sé afar mikivægt. Liverpool vann 2-1 útisigur í leiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.