19.10.26 - 17:09
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu bak við tjöldin hjá Brighton - Redknapp heimsótti spútnikliðið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brighton hefur unnið fjóra leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni með 15-0 í markatölu. Lið Fabian Hurzeler hefur verið skemmtilegasta lið deildarinnar, sóknarleikurinn hefur verið magnaður en ofan á það hefur varnarleikurinn verið öruggur.
Á Englandi er spurt hvort Brighton geti viðhaldið þessu magnaða gengi og gert atlögu að sjálfum Englandsmeistaratitlinum.
Brighton er annað af tveimur félögum deildarinnar (hitt er Everton) sem hafa komið út í plús í leikmannaviðskiptum undanfarin fimm ár. Félagið er í fararbroddi þegar kemur að því að finna leikmenn, fá þá til að passa inn í liðið og selja þá á mun hærra verði á réttum tíma. Brighton notar greiningar og gögn sem aðalaðferð sína til að skoða leikmenn og þjálfara.
Jamie Redknapp fór í heimsókn til Brighton fyrir Sky Sports og kynnti sér þetta áhugaverða félag betur.

TENGT EFNI
Skoða persónuleika leikmanna í þaula áður en þeir eru keyptir
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 7 | +12 | 21 |
| 2 | Arsenal | 7 | +6 | 18 |
| 3 | Brighton | 7 | +18 | 16 |
| 4 | Chelsea | 7 | +4 | 13 |
| 5 | Liverpool | 7 | +1 | 12 |
| 6 | Brentford | 7 | +5 | 10 |
| 7 | Leeds | 7 | +3 | 10 |
| 8 | Everton | 7 | +1 | 10 |
| 9 | Hull City | 7 | +1 | 9 |
| 10 | Ipswich Town | 7 | -4 | 9 |
| 11 | Newcastle | 7 | -4 | 8 |
| 12 | Aston Villa | 7 | -4 | 8 |
| 13 | Man Utd | 7 | 0 | 7 |
| 14 | Crystal Palace | 7 | -8 | 7 |
| 15 | Bournemouth | 7 | -4 | 6 |
| 16 | Coventry | 6 | -6 | 6 |
| 17 | Fulham | 7 | -3 | 5 |
| 18 | Nott. Forest | 7 | -4 | 5 |
| 19 | Sunderland | 7 | -8 | 4 |
| 20 | Tottenham | 6 | -6 | 3 |