04.03.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Carsten Pedersen í KA (Staðfest)

Bjarni Jóhannsson þjálfari KA.

Mynd: Heimasíða KA

Bjarni Jóhannsson þjálfari KA.

Mynd: Heimasíða KA
KA hefur samið við danska framherjann Carsten Pedersen en hann er væntanlegur til landsins í næstu viku.
Pedersen var á reynslu hjá KA á dögunum en hann skoraði meðal annars tvívegis í sigri á Dalvík/Reyni í æfingaleik.

Pedersen er 23 ára gamall en hann lék síðast með Rishøj í dönsku 2. deildinni. Pedersen hefur einnig verið á mála hjá Avedøre og Stenløse á ferli sínum.
Hjá KA er Pedesen ætlað að fylla skarð ungverska framherjans David Disztl.
,,Þetta er spennandi strákur sem kemur úr dönsku 2. deildinni. Hann var hérna í viku og sýndi margt gott þannig að við ákváðum að taka hann,\" sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA í samtali við Fótbolta.net í dag.