Fotbolti.net
04.03.14 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

Eyrún Guðmundsdóttir í Sunnanå (Staðfest)

Eyrún fagnar Íslandsmeistaratitli með Stjörnunni síðasta sumar.

Eyrún fagnar Íslandsmeistaratitli með Stjörnunni síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Eyrún Guðmundsdóttir varnarmaður Stjörnunnar er gengin til liðs við sænska liðið Sunnanå sem leikur í næst efstu deild þar í landi.
Þetta kom fram á sænska miðlinum Norran.se en þar kemur fram að Eyrún hafi æft á reynslu með liðinu fyrir nokkrum vikum síðan.

Hún sé nú gengin til liðs við félagið fyrir komandi leiktíð í Svíþjóð.

Eyrún hóf feril sinn með Þór/KA/KS sumarið 2004 en gekk til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið 2007. Hún hefur spilað 121 leik í deild og bikar.

Eyrún er annar leikmaðurinn sem Stjarnan missir í atvinnumennsku í vetur því Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir fór til Jitex.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.