04.03.14 - 15:11
Elvar Geir Magnússon
Puyol fer frá Barcelona eftir tímabilið (Staðfest)

Goðsögn.

Mynd: Getty Images

Goðsögn.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Carles Puyol mun yfirgefa Barcelona eftir tímabilið.
Þetta staðfesti leikmaðurinn í dag en þetta eru stórar fréttir enda hefur Puyol verið eitt helsta andlit Börsunga í langan tíma.

Puyol hefur ekki verið í sínu besta formi og aðeins byrjað einn deildarleik fyrir Barcelona og leikið níu leiki alls í öllum keppnum.
Þessi sigursæli leikmaður segist ekki vita hvaða skref hann mun taka næst á ferlinum en hann muni leggjast undir feld eftir tímabilið.
Puyol er 35 ára og hefur verið fyrirliði Barcelona í mörg ár enda mikill leiðtogi og margir spá honum frama í þjálfun þegar skórnir eru komnir upp í hillu. Allan feril sinn hefur hann leikið fyrir Börsunga og er goðsögn hjá félaginu.
Sex sinnum hefur hann hampað spænska meistaratitlinum, þrívegis unnið Meistaradeildina og unnið HM og EM. Alvöru maður.