Fotbolti.net
04.03.16 - 13:46
Magnús Már Einarsson

Finnur Ólafs í Þrótt (Staðfest)

Finnur Ólafs í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Nýliðar Þróttar hafa fengið miðjumanninn Finn Ólafsson í sínar raðir frá Víkingi Reykjavík. Finnur skrifaði undir eins árs samning við Þrótt en <a href=\"http://www.visir.is/finnur-olafsson-ad-semja-vid-thrott/article/2016160309378\" target=\"_blank\">Vísir.is</a> greinir frá þessu.
„Það var of mikið að gerast hjá Víkingum sem mér líkaði ekki. Maður getur vælt og vælt og sagt að allt sé öllum öðrum að kenna en maður verður líka að líta í eigin barm,“ segir Finnur í samtali við Vísi um ákvörðunina að skipta um félag.

„Ég skil í góðu við Víkingana. Þetta er algjör topp klúbbur og ég óska Víkingum alls hins besta. Þarna eru yndislegir strákar en þetta samstarf bara gekk ekki.“

Hinn 31 árs gamli Finnur spilaði 15 leiki með Víkingi í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

Finnur kom til Víkings haustið 2014 eftir þrjú tímabil hjá Fylki.

Finnur er uppalinn hjá HK en hann lék einnig með ÍBV árin 2010 og 2011.

Samtals hefur Finnur skorað tólf mörk í 207 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.

Komnir:
Arnar Darri Pétursson frá Stjörnunni
Aron Þórður Albertsson frá HK
Brynjar Jónasson frá Fjarðabyggð
Emil Atlason frá KR
Finnur Ólafsson frá Víkingi R.
Sebastian Svard frá Danmörku
Thiago Pinto Borges FC Vestsjælland í Danmörku
Viktor Unnar Illugason frá HK

Farnir:
Alexander Veigar Þórarinsson í Grindavík
Hlynur Hauksson að flytja erlendis
Jón Arnar Barðdal í Stjörnuna (Var á láni)
Viktor Jónsson í Víking R. (Var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.