Fotbolti.net
04.03.16 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Janez Vrenko í KF (Staðfest)

Janez Vrenko í KF (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KF hefur fengið varnarmanninn Janez Vrenko til liðs við sig fyrir átök sumarsins í 2. deild karla.

Janez spilaði í fyrra með Dalvík/Reyni í 2. deildinni en hann hefur nú gengið til liðs við nágrannana í KF.
Janez er 33 ára varnarmaður frá Slóvenú en hann hefur spilað á Íslandi síðan árið 2010.

Janez spilaði fyrsta með KA til ársins 2010 en hann tók síðan fjögur tímabil með Þór.

Undanfarnar vikur hefur Janez spilað með KF í Kjarnafæðismótinu og hann er nú kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Völsungi í Lengjubikarnum á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.