Fotbolti.net
04.03.16 - 09:55
Magnús Már Einarsson

Ósvald og Ernir í Vestra á láni (Staðfest)

Ósvald Jarl Traustason.

Ósvald Jarl Traustason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri, áður BÍ/Bolungarvík, hefur fengið Ósvald Jarl Traustason og Erni Bjarnason á láni frá Breiðabliki.

Lánssamningurinn gildir í mánuð til að byrja með og þeir Ósvald og Ernir spila með BÍ/Bolungarvík í Lengjubikarnum áður en ákvörðun verður tekin með sumarið.

Ósvald er vinstri bakvörður sem var á láni hjá Gróttu í fyrra en hann lék með Fram í Pepsi-deildinni árið 2014.
Ernir er miðjumaður en hann var á láni hjá Fram í 1. deildinni í fyrra.

BÍ/Bolungarvík er einnig að skoða frönsku leikmennina Zeze Lago Anderson og Zady Moise Gnenegbe en þeir verða með liðinu gegn KV í Lengjubikarnum í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.