Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 04. mars 2020 18:00
Magnús Már Einarsson
Ægir fær fimm nýja leikmenn (Staðfest)
Frá vinstri: Birkir Már, Halldór Mar, Stefán Blær, Brynjólfur Þór og Eyþór Örn.
Frá vinstri: Birkir Már, Halldór Mar, Stefán Blær, Brynjólfur Þór og Eyþór Örn.
Mynd: Ægir
Ægir, sem vann 4. deildina í fyrra, hefur fengið fimm nýja leikmenn fyrir átök sumarsins í 3. deildinni. Þetta eru Stefán Blær Jóhannsson, Brynjólfur Þór Eyþórsson, Halldór Mar Einarsson, Birkir Már Hauksson og Eyþór Örn Þorvaldsson

Halldór er fjölhæfur varnar og miðjumaður sem kemur frá Völsung og Birkir er örvfættur bakvörður sem kemur frá Magna.

Eyþór er sóknarmaður sem kemur frá KH en hann getur leyst allar fremstu stöðurnar á vellinum.

Markvörðurinn Stefán Blær og sóknarmaðurinn Brynjólfur Þór eru ungir leikmenn sem koma á láni frá Selfossi.

„Þessir leikmenn munu vafalaust styrkja leikmannahóp Ægis fyrir átökin í 3. deildinni í sumar og bindum við miklar vonir við þá," segir í fréttatilkynningu frá Ægi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner