Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. mars 2020 10:06
Magnús Már Einarsson
Bruce brjálaður: Þetta er algjör lygi
Steve Bruce.
Steve Bruce.
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, lét Craig Hope, blaðamann á DAily Mail, heyra það á fréttamannafundi eftir 3-2 sigurinn á WBA í enska bikarnum í gær.

Hope gerði um helgina frétt um að Allan Saint-Maximin hefði verið tekinn úr byrjunarliðinu gegn Burnley á laugardag eftir rifrildi við Bruce.

Bruce segir þetta vera algjört kjaftæði en Saint-Maximin var á ný í byrjunarliðinu í gærkvöldi.

„Ég ætla ekki að svara þér Craig," sagði Bruce reiður á fréttamannafundi í gærkvöldi þegar Craig bar upp spurningu um Saint-Maximin.

„Þetta er algjör lygi og algjört kjaftæði. Ég er ánægður með að heimildarmaður þinn hafði rangt fyrir sér"

„Fréttin þín var röng. Ég hef ekki átt neitt rifrildi við Saint-Maximin."


Hér að neðan má sjá Bruce láta í sér heyra.

Athugasemdir
banner
banner
banner