Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 04. mars 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Gerrard: Ekki hafa áhyggjur af dansandi Morelos
Steven Gerrard, stjóri Rangers, fékk að líta rauða spjaldið í hálfleik í leik liðsins gegn Linvingston í gær.

Gerrard var reiður eftir að framherjinn Alfredo Morelos fékk gult spjald fyrir leikaraskap í stað þess að fá vítaspyrnu.

Morelos hefur áður verið spjaldaður fyrir leikaraskap og Gerrard var spurður út í framherjann eftir leik.

„Ekki hafa áhyggjur af Alfredo. Hann var að skora sigurmarkið og er inn í klefa treyjulaus að dansa við Sweet Caroline," sagði Gerrard eftir leik.

Morelos skoraði eina markið í leiknum í gær en Rangers er með átján stiga forskot á Celtic á toppi deildarinnar.

Athugasemdir