Fotbolti.net
04.03.22 - 13:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Oliver Kelaart í Þrótt Vogum (Staðfest)

Oliver Kelaart í Þrótt Vogum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Oliver James Kelaart er genginn í raðir Þróttar Vogum frá Keflavík og mun spila með nýliðum Þróttar í Lengjudeildinni í sumar.

Oliver er 23 ára vængmaður sem kom frá Spáni til Kormáks/Hvatar fyrir tímabilið 2020.
Í fyrra skipti hann svo yfir í Keflavík og skoraði eitt mark í þeim tólf leikjum sem hann kom við sögu.

Þróttur vann 2. deild síðasta sumar og er í fyrsta sinn í sögunni í næstefstu deild.

Komnir
Arnór Gauti Úlfarsson frá FH (á láni)
Freyþór Hrafn Harðarson frá Magna
Haukur Darri Pálsson frá Augnabliki
James Dale frá Víkingi Ólafsvík
Magnús Ingi Einarsson frá Árborg
Nikola Dejan Djuric frá KV
Oliver Kelaart frá Keflavík

Farnir
Bjarki Björn Gunnarsson í Víking R. (var á láni)
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson í Grindavík (var á láni)
Enok Eiðsson
Hubert Kotus
Marc Wilson
Örn Rúnar Magnússon í ÍH
Sigurður Gísli Bond Snorrason í Aftureldingu
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.