Fotbolti.net
04.04.13 - 17:11
Elvar Geir Magnússon

Kristján Hauks og Agnar Bragi í Fylki (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag. Kristján Hauksson, Ásgeir Ásgeirsson formaður og Agnar Bragi.

Frá undirskriftinni í dag. Kristján Hauksson, Ásgeir Ásgeirsson formaður og Agnar Bragi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Varnarmennirnir Kristján Hauksson og Agnar Bragi Magnússon skrifuðu rétt í þessu undir samninga við Fylki. Báðir samningar eru til eins árs.

Kristján var fyrirliði Fram á síðustu leiktíð en komst að samkomulagi um starfslok fyrir rúmum mánuði síðan. Eftir það tilkynnti hann að hann væri hættur í fótbolta.
Kristján er 27 ára og fékk fiðringinn aftur og hélt út í æfingaferð með Fylkismönnum. Hann hefur nú komist að samkomulagi um að leika fyrir liðið í sumar.

Hann lék á sínum tíma hjá Fjölni undir stjórn Ásmundar Arnarssonar.

Agnar Bragi lék með Selfyssingum síðastliðið sumar en hann ákvað að yfirgefa herbúðir félagsins eftir síðasta tímabil. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum.

Fyrir áramót spilaði Agnar Bragi með Lynn háskólanum í Bandaríkjunum þar sem liðið varð meistari. Þegar hann kom til landsins á ný fór hann að æfa með Fylki, sínu uppeldisliði.

Viðtöl við Kristján og Agnar Braga birtast hér á síðunni á eftir
Kristján Hauks og Agnar Bragi í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.