04.04.13 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Marko Pavlov í Víking R. (Staðfest)

Marko Pavlov og Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings.

Mynd: Víkingur R.

Víkingur hefur samið við Marko Pavlov um að leika með félaginu út árið 2014. Marko kemur til Víkings frá Pelister í Makedóníu en áður lék hann með Breiðabliki hér á landi.
Marko á að baki landsleiki fyrir U17 og U19 ára landslið Íslands auk þess að hafa leikið fyrir U21 árs landslið Makedóníu.
Marko er uppalinn í Stjörnunni en á ferli sínum hefur hann einnig verið á mála hjá Caen í Frakklandi og Real Betis og Real Mallorca á Spáni.
,,Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir ánægju með að hafa náð samningum við leikmanninn,\" segir í fréttatilkynningu frá Víkingi.
Áður hefur Víkingur samið við Ingvar Þór Kale (Breiðablik), Andra Stein Birgisson (Leiknir), Axel Kára Vignisson (ÍR), Ívar Örn Jónsson (HK), Igor Taskovic (Sviss), Óttar Stein Magnússon (Höttur) og Dofra Snorrason (KR).