Fotbolti.net
04.04.16 - 12:03
Magnús Már Einarsson

Conte tekur við Chelsea (Staðfest)

Tekur við Chelsea í sumar.

Tekur við Chelsea í sumar.

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte, landsliðsþjálfari Ítalíu, hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea en hann tekur til starfa eftir EM í sumar.

Hinn 46 ára gamli Conte hefur skrifað undir þriggja ára samning við Chelsea.

Guus Hiddink tók við Chelsea þegar Jose Mourinho var rekinn í vetur en það lá alltaf fyrir að Hiddink myndi einungis stýra liðinu út tímabilið.
„Ég er mjög spenntur fyrir því verkefni að vinna hjá Chelsea. Ég er stoltur af því að vera landsliðsþjálfari hjá minni þjóð og eina sem gæti verið jafn spennandi eftir það er lið eins og Chelsea,\" sagði Conte.

„Ég er ánægður með að þetta sé tilkynnt núna svo allt sé á hreinu og við getum hætt öllum vangaveltum. Ég held áfram að einbeita mér að mínu starfi með ítalska landsliðið og mun ekki ræða um Chelsea fyrr en eftir EM.\"

Conte, sem er fyrrum þjálfari og leikmaður Juventus, er fimmti ítalski stjórinn í sögu Chelsea á eftir Gianluca Vialli, Claudio Ranieri, Carlo Ancelotti og Roberto Di Matteo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.