04.04.16 - 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Kristján Ómar í ÍR (Staðfest)

Kristján Ómar í leik með Gróttu gegn Haukum í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Ómar í leik með Gróttu gegn Haukum í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar, en reynsluboltinn Kristján Ómar Björnsson er genginn í raðir félagsins.
Kristján Ómar er á 36. aldursári og kemur til ÍR frá Gróttu þar sem hann lék alla leiki liðsins í 1. deildinni á síðustu leiktíð.
Kristján Ómar er á 36. aldursári og kemur til ÍR frá Gróttu þar sem hann lék alla leiki liðsins í 1. deildinni á síðustu leiktíð.
Kristján Ómar hefur spilað stærstan hluta ferilsins hjá Haukum, eða á árunum 2002-2007 og svo 2010-2014. Hann hefur einnig leikið með Þrótti, Stjörnunni og nú síðast Gróttu.
Alls á Kristján að baki 286 leiki í þremur efstu deildum Íslandsmótsins og bikar og hefur hann skorað í þeim 18 mörk.
Alls á Kristján að baki 286 leiki í þremur efstu deildum Íslandsmótsins og bikar og hefur hann skorað í þeim 18 mörk.
