Fotbolti.net
04.04.16 - 16:35
Elvar Geir Magnússon

Óttar Magnús heim til Víkings R. (Staðfest)

Óttar í unglingalandsleik.

Óttar í unglingalandsleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unglingalandsliðsmaðurinn Óttar Magnús Karlsson gengur í raðir uppeldisfélags síns, Víkings í Reykjavík, en þetta staðfestir Milos Milojevic, þjálfari Víkinga, í samtali við <a href=\"http://www.visir.is/ottar-magnus-a-heimleid-og-spilar-med-vikingi-i-sumar/article/2016160409486\" target=\"_blank\">Vísi</a>.
Óttar leikur sem framherji og er á nítjánda aldursári. Hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands. Hann gekk í raðir hollenska stórliðsins Ajax og hefur verið í unglingaakademíu félagsins.

Ajax lánaði hann til Spörtu í Rotterdam þar sem hann lék með varaliðinu.

Óttar á tvo meistaraflokksleiki að baki en þá lék hann fyrir Víkinga 2013 áður en hann fór út.

„Nú þarf hann bara að fara að spila meistaraflokksbolta og taka næsta skref. Óttar er þessi vinstri fótar leikmaður sem við vorum að leita að. Breiddin er mikil í hópnum núna og hópurinn er sterkur,\" segir Milos í viðtali við Vísi en hann telur að leikmannahópur sinn sé klár fyrir sumarið.

Komnir:
Alex Freyr Hilmarsson frá Grindavík
Gary Martin frá KR
Iain Williamson frá Val
Róbert Örn Óskarsson frá FH
Óttar Magnús Karlsson frá Hollandi

Farnir:
Agnar Darri Sverrisson í Þór
Atli Fannar Jónsson í Fram
Finnur Ólafsson í Þrótt
Hallgrímur Mar Steingrímsson í KA
Rolf Toft í Val
Thomas Nielsen til Silkeborg

Heimild: Vísir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.