Fotbolti.net
04.04.16 - 08:00
Alexander Freyr Tamimi

Schaaf rekinn frá Hannover (Staðfest)

Schaaf er ekki lengur þjálfari Hannover.

Schaaf er ekki lengur þjálfari Hannover.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska úrvalsdeildarfélagið Hannover ákvað í gær að reka þjálfarann Thomas Schaaf eftir að liðið tapaði sínum fimmta leik í röð á laugardag.

Eftir 3-0 tap gegn Hamburg er Hannover á botni deildarinnar, tíu stigum frá næsta liði þegar einungis sex leikir eru eftir af tímabilinu.

Schaaf skrifaði undir 18 mánaða samning við Hannover í desember 2015 en tókst engan veginn að snúa gengi liðsins við. Hefur hann nú verið rekinn.
Yfirmaður knattspyrnumála hjá Hannover þakkaði Schaaf fyrir vel unnin störf og sagði hann hafa lagt allt sitt í verkefnið. Eftir tíu töp í 11 leikjum væri hins vegar ekki annað hægt en að láta hann fara.

Aðstoðarmenn Schaaf voru einnig reknir og mun Daniel Strendel, þjálfari unglingaliðsins, stýra Hannover til bráðabirgða.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.