Fotbolti.net
04.04.17 - 16:10
Magnús Már Einarsson

Robbie Crawford í FH (Staðfest)

Crawford í leik með Rangers.

Crawford í leik með Rangers.

Canon

Mynd: Getty Images

Skoski miðjumaðurinn Robbie Crawford hefur fengið félagaskipti yfir í FH. Robbie var á reynslu hjá FH í síðustu viku og hann hefur nú gengið til liðs við félagið.
Hinn 23 ára gamli Crawford æfði og spilaði með Þrótti í æfingaferð á Marbella á Spáni á dögunum. FH ákvað síðan að fá Crawford á reynslu og hann er nú genginn í raðir félagsins.

Crawford ólst upp hjá stórliði Rangers í Skotlandi. Eftir gjaldþrot Rangers árið 2012 fékk Crawford tækifæri í aðalliðinu í fjórðu efstu deild.

Crawford hjálpaði Rangers upp úr D og C-deildinni auk þess sem hann lék nokkra leiki í B-deildinni áður en hann fór á lán. Crawford losnaði síðan undan samningi hjá Rangers í fyrra.

Hann getur spilað sinn fyrsta leik með FH gegn Breiðabliki í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins á mánudaginn.

Komnir:
Guðmundur Karl Guðmundsson frá Fjölni
Halldór Orri Björnsson frá Stjörnunni
Robbie Crawford frá Skotlandi
Veigar Páll Gunnarsson frá Stjörnunni
Vignir Jóhannesson frá Selfossi

Farnir:
Brynjar Ásgeir Guðmundsson í Grindavík
Hörður Ingi Gunnarsson í Víking Ó. á láni
Jeremy Serwy til Belgíu
Kaj Leo í Bartalsstovu í ÍBV
Kristján Finnbogason hættur
Sam Hewson í Grindavík
Sonni Ragnar Nattestad í Molde
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.