04.04.22 - 22:26
Brynjar Ingi Erluson
Björn Axel, Oddur Ingi og Þorsteinn í KV (Staðfest)

Björn Axel, Þorsteinn Örn og Oddur Ingi skrifuðu undir í kvöld

Mynd: KV

Björn Axel Guðjónsson, Oddur Ingi Bjarnason og Þorsteinn Örn Bernharðsson gengu í kvöld frá samningum við KV og munu spila með liðinu í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Björn Axel, sem er 27 ára gamall, kemur til félagsins frá Gróttu, en þekkir vel til hjá KV.
Hann lék með félaginu tímabilin 2019 og 2020 áður en hann fór aftur til uppeldisfélagsins. Björn skoraði 4 mörk í 20 deildarleikjum með Gróttu í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
Oddur Ingi er 21 árs gamall og uppalinn í KR en hann var á láni hjá Grindavík á síðasta tímabili.
Hann lék með KV árið 2019 og skoraði þá 7 mörk í deild- og bikar með liðinu.
Þorsteinn Örn er 22 ára gamall og þekkir vel til hjá KV eins og hinir tveir leikmennirnir. Hann hefur spilað á láni hjá félaginu síðustu tvö tímabil og gerir nú sinn þriðja lánssamning við KV.
KV vann sér sæti í Lengjudeildinni á síðasta tímabili er liðið hafnaði í 2. sæti í 2. deild.