Freyja yngst í sögu Víkings (Staðfest)


Mynd: Víkingur R.


Mynd: Víkingur R.

Víkingur R. var að semja við hina 14 ára gömlu Freyju Stefánsdóttur sem varð um leið yngsti leikmaður til að skrifa undir samning við knattspyrnudeild félagsins frá upphafi.
Freyja, sem lék upp alla yngri flokka Víkings, varð fjórtán ára í desember. Hún er gríðarlega mikið efni og hefur til að mynda spilað keppnisleiki fyrir 4. flokk Víkings á hverju ári síðustu fjögur ár en í fyrra fékk hún líka að spreyta sig með 3. flokki.
Freyja er mikilvægur partur af sigursælum árgöngum Víkings og hefur unnið ógrynni verðlauna með vinkonum sínum. Hún hefur spilað flestar stöður á vellinum en nýtur sín best sem framherji og hefur markaskorunin ekki látið á sér standa í gegnum yngri flokkana.
Það kemur ekki á óvart að Freyja hefur verið valin í æfingahópa U15 og U16 ára landsliðanna enda er hún meðal hæfileikaríkustu fótboltastelpna landsins í sínum árgangi.
„Það er með mikilli tilhlökkun sem við óskum Freyju til hamingju með samninginn, en jafnframt heiður að hafa tryggt okkur krafta hennar og hæfileika til næstu ára," segir í færslu frá Víkingi R.
