04.05.17 - 14:07
Magnús Már Einarsson
Bjarni Gunn í HK (Staðfest)

Bjarni í leik með ÍBV í Lengjubikarnum.

Mynd: Raggi Óla

Bjarni í leik með ÍBV í Lengjubikarnum.

Mynd: Raggi Óla
HK hefur fengið framherjann Bjarna Gunnarsson til liðs við sig frá ÍBV.
Bjarni þekkir til hjá HK því hann lék með liðinu á láni síðari hluta síðasta tímabils í Inkasso-deildinni. Þá skoraði hann eitt mark í tíu leikjum.

Hinn 24 ára gamli Bjarni er uppalinn hjá Fjölni en hann gekk í raðir ÍBV árið 2013.
Í fyrra var Bjarni á láni hjá HK frá ÍBV en hann hefur nú fengið varanleg félagaskipti.
HK er spáð 9. sæti í Inkasso-deildinni í sumar en liðið mætir Fram í fyrsta leik annað kvöld. Bjarni er kominn með leikheimild og hann getur því leikið með HK-ingum þar.