Fotbolti.net
04.05.17 - 20:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Óskar Jónsson lánaður frá Breiðablik til ÍR (Staðfest)

Óskar í leik með Þór síðasta sumar

Óskar í leik með Þór síðasta sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Óskar Jónsson hefur verið lánaður til ÍR frá Breiðablik og mun hann því leika með liðinu í Inkasso deildinni í sumar en hann er miðjumaður.

Óskar bætist því í hóp fleiri Blika sem munu leika í Inkasso deildinni í sumar.

Óskar spilaði með Þór á Akureyri fyrri hlutann af síðasta sumri í Inkasso deildinni og lék þá 10 leiki og skoraði eitt mark.

Hann hefur leikið einn leik með meistaraflokki Breiðabliks, en hann kom í Borgunarbikarnum í fyrra.

Óskar á fjóra landsleiki fyrir U19 ára lið Íslands og þá hefur hann verið lykilmaður í 2. flokki Breiðabliks sem hefur orðið Íslandsmeistari undanfarin tvö ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.