Fotbolti.net
04.05.17 - 11:29
Magnús Már Einarsson

Valur fær landsliðskonu frá Wales (Staðfest)

Angharad í leik með Notts County.

Angharad í leik með Notts County.

Canon

Mynd: Twitter

Kvennaboltinn
Valur fengið miðjumanninn Angharad James til liðs við sig fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Angharad er 22 ára gömul en hún á 48 landsleiki að baki með Wales. Hún spilaði síðast með Notts County á Englandi.
Dóra María Lárusdóttir, miðjumaður Vals, sleit krossband í vetur og Angharad mun hjálpa til við að fylla skarð hennar á miðjunni.

Elísa Viðarsdóttir og Mist Edvardsdóttir, varnarmenn Vals, hafa einnig slitið krossband á undanförnum mánuðum og verða því ekki með í sumar.

Valur vann ÍBV 4-0 í gærkvöldi en liðið er með þrjú stig eftir tvær umferðir í Pepsi-deild kvenna.

Angharad er að sjálfsögðu strax mætt í Draumaliðsdeild Azazo en þú getur keypt hana í þitt lið þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.