Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. maí 2021 23:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guardiola: Fyrstu hugsanir eru til þeirra sem spiluðu ekki
Mynd: EPA
„Þetta er fyrrir okkur alla og félagið."

Sagði stoltur Pep Guardiola, stjóri Manchester City, eftir 2-0 sigur á PSG. City er á leið í sinn fyrsta úrslitaleik í Meistaradeildinni í sögu félagsins.

„Ég er ótrúlega stoltur og mínar fyrstu hugsanir eru til þeirra sem spiluðu ekki í dag."

„Þeir áttu allir skilið að spila, allir hafa komið með framlag og núna er tími til að njóta."

City mætir annað hvort Real Madrid eða Chelsea í úrslitaleiknum, það kemur í ljós annað kvöld.

Úrslitaleikurinn fer fram í Istanbul þann 29. maí.

„Núna verðum við að vinna deildina og við höfum tvær eða þrjár vikur til að undirbúa úrslitaleikinn," sagði Guardiola
Athugasemdir
banner
banner
banner