Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. maí 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Vidal unnið tólf deildartitla á síðustu fimmtán árum
Arturo Vidal þekkir nánast ekkert annað en að vinna
Arturo Vidal þekkir nánast ekkert annað en að vinna
Mynd: Getty Images
Sílemaðurinn Arturo Vidal bætti við tólfta deildaritlinum á ferilskrána um helgina er Inter varð ítalskur meistari en hann hefur unnið þessa titla á fimmtán árum.

Vidal er 33 ára gamall og með vel skreytta ferilskrá en hann vann fyrstu þrjá deildaritlana með Colo Colo í Síle. Bayer Leverkusen festi kaup á honum í kjölfarið en Vidal vann þó ekkert þar á fjórum árum sínum þar.

Juventus sá gæðin í honum og fékk hann árið 2011. Vidal reyndist drifkrafturinn í sterku liði Juve þar sem hann vann deildina fjórum sinnum áður en hann fór til Bayern München.

Þar vann hann deildina þrisvar sinnum og fór því næst til Barcelona þar sem annar deildaritill fylgdi í kjölfarið.

Tólfti deildarititillinn kom svo um helgina þegar Inter varð ítalskur meistari. Magnaður árangur hjá Vidal og liðsfélögum hans í Inter sem náðu loks að steypa Juventus af stóli.
Athugasemdir
banner
banner
banner