Topp tíu - Bestu kaup tímabilsins í enska

10) Hassane Kamara, Watford - Kom frá Nice í janúar og hefur verið ljós punktur á erfiðu tímabili.

Mynd: Getty Images

9) Bruno Guimaraes, Newcastle - Hefur breytt miðsvæðinu hjá Newcastle síðan hann kom.

Mynd: Getty Images

8) Philippe Coutinho, Aston Villa - Frammistaðan hefur aðeins dalað eftir magnaða byrjun en Coutinho hefur leikið frábærlega fyrir Villa.

Mynd: Getty Images

7) Rodrigo Bentancur, Tottenham - Hefur komið með þætti á miðsvæðið sem Tottenham skorti.

Mynd: Getty Images

6) Jack Grealish, Manchester City - Margir bjuggust við meiru frá Grealish en hann hefur alls ekki verið slakur eins og margir segja.

Mynd: EPA

5) Conor Gallagher, Crystal Palace - Hefur verið geggjaður fyrir Palace, á lánssamningi frá Chelsea.

Mynd: Getty Images

4) Cristiano Ronaldo, Manchester United - Aðeins Salah og Son hafa skorað fleiri deildarmörk á þessu tímabili.

Mynd: Getty Images

3) Dejan Kulusevski, Tottenham - Enginn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hefur átt fleiri stoðsendingar en hann síðan hann kom í ensku úrvalsdeildina.

Mynd: EPA

2) Christian Eriksen, Brentford - Ein besta saga tímabilsins. Mörg félög voru hrædd við að semja við hann en Brentford ekki. Þar hefur hann blómstrað.

Mynd: EPA

1) Luis Díaz, Liverpool - Það er hreinlega erfitt að trúa því að Kólumbíumaðurinn hafi bara verið nokkra mánuði hjá Liverpool. Hefur smellpassað í liðið og er að gera gæfumuninn í leikjum.

Mynd: EPA
