Fotbolti.net
04.06.13 - 18:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Gattuso í óöruggasta sæti Ítalíu (Staðfest)

Gattuso í óöruggasta sæti Ítalíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn grjótharði Gennaro Gattuso hefur verið ráðinn nýr þjálfari Palermo. Þetta staðfesti hinn litríki forseti félagsins, Maurizio Zamparini.

Þolinmæðin er á skornum skammti hjá Zamparini og hann er duglegur við að klæða sig í stígvél og sparka þjálfurum ef hann er ekki sáttur við úrslitin.
„Gattuso er þjálfari okkar fyrir næsta tímabil. Ég get staðfest það opinberlega. Það er gott að fá svona mikilvægan einstakling á bekkinn hjá okkur, mann sem hefur skrifað mikilvæga kafla í fótboltasögu Ítalíu,\" sagði Zamparini.

Palermo fékk úr ítölsku A-deildinni á liðnu tímabili en Zamparini segist sannfærður um að undir stjórn Gattuso muni liðið fljúga aftur upp.

Gattuso, sem er 35 ára, gekk í raðir Sion í Sviss frá AC Milan síðasta sumar en sem leikmaður var hann talinn einn harðasti miðjumaður í bransanum. Hann er ekki með mikla þjálfarareynslu en var þó spilandi þjálfari Sion í tíu leiki.

Hann tekur við Palermo af Guiseppe Sannino sem fór fram á að vera leystur frá störfum eftir að liðið féll í B-deildina.

Sjá einnig:
Pistill: Maðurinn með brottrekstrarblætið
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.