Fotbolti.net
04.06.14 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

Moya nýr markvörður Atletico Madrid (Staðfest)

Moya gæti þurft að fylla í ansi stórt skarð hjá Spánarmeisturunum.

Moya gæti þurft að fylla í ansi stórt skarð hjá Spánarmeisturunum.

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid er búið að staðfesta komu Miguel Angel Moya frá Getafe á þriggja ára samning, en Moya hefur verið aðalmarkvörður Getafe í þrjú ár.

Félagið tilkynnti komu markvarðarins með mynd á Instagram og benda þessi félagsskipti til þess að Thibaut Courtois sé líklega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Atletico, allavega í bili.
Courtois verður líklega hjá Chelsea á næsta tímabili enda hefur hann vakið verðskuldaða athygli í marki Atletico sem vann spænsku deildina og endaði í öðru sæti Meistaradeildarinnar á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.