Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. júní 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Djenepo ætlar að verða betri en Mane
Mynd: Getty Images
Moussa Djenepo, kantmaður Southampton, vonast til að verða betri en Sadio Mane í framtíðinni.

Mane lék með Southampton áður en hann fór til Liverpool þar sem hann hefur slegið í gegn.

Djenepo kom til Southampton frá Standard Liege á fjórtán milljónir punda í fyrra og hefur skorað tvö mörk og lagt upp tvö í ensku úrvalsdeildinni.

„Sadio veitir mér mikinn innblástur. Ég kann vel við hann og hann er mjög öflugur leikmaður," sagði Djenepo.

„Ég tel að ég geti gert betur en hann hef ég legg hart að mér. Sadio er mjög stór leikmaður og ég er ungur og þarf að læra meira. Við sjáum ti l í framtíðinni. Ég mun gera mitt besta til að verða næsti Sadio Mane."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner