Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 04. júní 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Man Utd þarf að borga meira til að landa Bellingham
Mynd: Getty Images
Manchester United þarf að bjóða Birmingham hærri upphæð til að ná að landa miðjumanninum unga Jude Bellingham.

Hinn 16 ára gamli Bellingham er mjög eftirsóttur en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað mikið með Birmingham á þessu tímabili.

Manchester United er í bílstjórasætinu í baráttunni um Bellingham en félagið hefur hingað til viljað borga lægra kaupverð með bónusgreiðslum til Birmingham ef leikmaðurinn stendur sig vel í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni í framtíðinni.

Birmingham er í fjárhagsvandræðum og vill fá hærra kaupverð strax frá United að sögn ESPN.

Viðræður halda áfram en Borussia Dortmund og Arsenal hafa einnig sýnt Bellingham áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner