Fotbolti.net
04.06.22 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Castellanos til Man City (Staðfest)

Castellanos til Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn

Manchester City er búið að staðfesta félagaskipti Deyna Castellanos til félagsins eftir tvö ár hjá Atletico Madrid í spænska boltanum.

Castellanos er 23 ára og gæti reynst mikill liðsstyrkur fyrir Man City sem endaði í þriðja sæti efstu deildar kvenna á leiktíðinni, átta stigum eftir toppliðunum.

Castellanos spilar yfirleitt á kantinum og er iðin við markaskorun þar sem hún gerði 23 mörk í 57 deildarleikjum á Spáni, auk þess að leggja ellefu mörk til viðbótar upp.

Castellanos er landsliðskona Venesúela og hefur skorað 12 mörk í 25 landsleikjum.

„Ég er ótrúlega ánægð með að vera komin hingað, aðstæðurnar hérna eru ótrúlegar. Ég trúi því að þetta félag mun gera mig að betri leikmanni og ég vona að ég geti líka hjálpað félaginu," sagði Castellanos.

„Ég valdi treyju númer 10 því ég klæddist henni í háskólaboltanum og skoraði glæsileg mörk í henni. Vonandi tekst mér að skapa fleiri góðar minningar hérna hjá City."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.