Fotbolti.net
04.06.22 - 15:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Farke gerir þriggja ára samning við Gladbach (Staðfest)

Farke gerir þriggja ára samning við Gladbach (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Daniel Farke hefur verið ráðinn stjóri Borussia Mönchengladbach en hann gerir þriggja ára samning við félagið.

Farke stýrði varaliði Dortmund áður en hann tók við Norwich árið 2017 en hann kom enska liðinu tvisvar upp í úrvalsdeildina áður en hann var rekinn í byrjun nóvember í fyrra.

Hann tók við rússneska liðinu Krasnodar í janúar en yfirgaf félagið í mars, án þess að stýra liðinu í leik, vegna innrásar Rússlands í Úkraínu.

Gladbach endaði í 10. sæti efstu deildarinnar í Þýskalandi á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.