Stjarnan var, eins og öll önnur lið í Bestu deildinni, til umræðu í Innkastinu þar sem 10. umferð deildarinnar var gerð upp.
Stjarnan átti virkilega góðan fyrri hálfleik gegn KA á sunnudaginn, eftir að KA fékk fyrsta færi leiksins var Stjarnan með algjöra yfirburði þar til Alex Þór Hauksson var rekinn af velli seint í hálfleiknum. Stjarnan náði hins vegar bara að skora eitt mark á þessum kafla og KA náði undir lok leiks að nýta sér liðsmuninn og jafna leikinn.
Stjarnan átti virkilega góðan fyrri hálfleik gegn KA á sunnudaginn, eftir að KA fékk fyrsta færi leiksins var Stjarnan með algjöra yfirburði þar til Alex Þór Hauksson var rekinn af velli seint í hálfleiknum. Stjarnan náði hins vegar bara að skora eitt mark á þessum kafla og KA náði undir lok leiks að nýta sér liðsmuninn og jafna leikinn.
Lestu um leikinn: KA 1 - 1 Stjarnan
„Stjarnan var mjög flott í 38 mínútur sóknarlega, voru að ógna mikið úr ýmsum áttum og ég var mjög hrifinn af því sem Stjörnumenn voru að gera. Eftir að þeir lenda manni færri fannst mér þeir flottir líka, lögðust niður í 4-4-1, spiluðu það vel og voru að halda í boltann þegar þeir gátu. Kjartan Már (Kjartansson) inn á miðjunni fannst mér frábær, meiriháttar góður, Árni (Snær Ólafsson) varði vel og Sindri (Þór Ingimarsson) var góður í vörninni. Það var fullt af fínum frammistöðum og eitthvað sem þeir geta tekið með sér. Við megum ekki gleyma því að þetta var fyrsta stig Stjörnunnar á útivelli í sumar. Að hanga þó á þessu eina stigi hlýtur að vera eitthvað sem þeir geta tekið með sér," sagði Atli Viðar Björnsson.
„Stjarnan er í 5. sæti með 14 stig. Þegar maður horfir á tímabilið og hvernig þetta er búið að vera þá eru allir sammála um að þetta sé ekki búið að vera gott tímabil. Stjarnan er í nákvæmlega sömu stöðu og allir aðrir að með 1-2 sigurleikjum þá ertu kominn í baráttu. Öll lið eru að vinna alla. Stjarnan getur haldið áfram og horft upp á við," sagði Valur Gunnarsson.
„Þeir eru eitt af fáum liðum sem maður sér fyrir sér að geti dottið á skrið og unnið 4-5 leiki í röð, eru með mannskapinn í það. Það eru allir búnir að ræða það, en mér finnst þetta stöðugleika leysi í liðsvali hjá Jökli vera að bíta þá í rassinn. Við erum komnir tíu leiki inn í mótið og við höfum ekki hugmynd um hvernig bestu ellefu hjá Stjörnunni líta út, mér finnst það svolítið sérstakt. Ég vona þeirra vegna að þeir fari að finna 7-8 leikmenn allavega sem þeir vita að spila alla leiki og fari að byggja liðið í kringum það, af því maður veit einhvern veginn ekkert hvað bíður manni þegar maður mætir á Stjörnuleik," sagði Atli Viðar.
Eftir leikinn á sunnudag var rætt við Stjörnumennina Jökul Elísabetarson og Samúel Kára Friðjónsson um tímabilið til þessa.
„Mér finnst við á góðum stað núna, finnst við vera að bæta okkur, finnst við vera að færast nær því sem við höfum verið. Við komum úr skrítnum leik síðast sem var búinn eftir tíu mínútur og allt sem gerðist eftir það er næstum því ekki 'relevant' og ég pæli ekki mikið í frammistöðunni þar að öðru leyti en andlegu hliðinni. Ég er ánægður með hvar liðið er, mér fannst hreyfingarnar í þessum leik góðar og við spila góðan fótbolta. Ég er mjög ánægður með hvar við erum akkúrat núna, burtséð frá einhverri byrjun eða eftir 4./5. umferð, ég pæli bara í því sem er í dag og ég er mjög ánægður með hópinn," sagði þjálfarinn Jökull.
„Við erum bara flottir, erum í ákveðnu verkefni, erum að spila vel og verðum bara að halda áfram. Við erum í góðri stöðu og það er bara áfram veginn," sagði Samúel sem spilaði sem miðvörður gegn KA. Hann hefur einnig spilað sem hægri bakvörður sem og á miðsvæðinu.
„Ég spilaði bakvörðinn og hafsentinn líka þegar ég var úti. Það sem er best fyrir liðið, þar spila ég, og áfram veginn. Við tökum eitt stig fyrir norðan og komum tvíefldir til baka eftir kærkomið stutt frí," sagði Samúel.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 10 | 6 | 2 | 2 | 19 - 11 | +8 | 20 |
2. Breiðablik | 10 | 6 | 1 | 3 | 17 - 16 | +1 | 19 |
3. Valur | 10 | 5 | 3 | 2 | 22 - 13 | +9 | 18 |
4. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
5. Stjarnan | 10 | 4 | 2 | 4 | 17 - 18 | -1 | 14 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 10 | 4 | 0 | 6 | 16 - 17 | -1 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir