Fotbolti.net
24.10.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni

England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Chelsea 0 - 2 Tottenham
0-1 Mike Penders ('77 , sjálfsmark)
0-2 Mathys Tel ('87 )
Chelsea og Tottenham áttust við í spennandi Lundúnaslag í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og mættu lærlingar Roberto De Zerbi í liði Tottenham grimmir til leiks.

Tottenham var sterkara liðið í nokkuð tíðindalitlum slag en staðan var markalaus þegar leikmenn gengu til búningsklefana í leikhlé.

Gestirnir fengu besta færi fyrri hálfleiksins og voru áfram sterkara liðið í síðari hálfleik, en áttu erfitt með að skapa góð færi. Þeim tókst þó að skora á 77. mínútu, þegar markvörðurinn ungi Mike Penders kýldi boltann í eigið net. Hann hafði átt góðan leik en gerði afar slæm mistök til að gefa Tottenham forystuna eftir hornspyrnu. Penders fór út í boltann en var ekki nógu sterkur í baráttunni við Jan Paul van Hecke og kýldi boltann þar af leiðandi afturfyrir sig og í eigið net.

Skömmu síðar versnaði ástandið hjá heimamönnum þegar Cole Palmer fékk seinna gula spjaldið sitt fyrir augljóst brot á 80. mínútu.

Leikmenn Tottenham voru manni fleiri og tvöfaldaði franski U21 landsliðsmaðurinn Mathys Tel forystuna með marki eftir skyndisókn á lokamínútum venjulegs leiktíma. Tel skoraði eftir magnaðan sprett frá eigin vallarhelmingi til þess að innsigla dýrmætan sigur á Stamford Bridge.

Lokatölur 0-2 fyrir Tottenham og eru lærlingar De Zerbi búnir að vinna tvo leiki í röð. Þeir eiga núna 9 stig eftir 8 umferðir og eru fjórum stigum á eftir Chelsea.
England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni
Canon

Mynd: EPA

England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.