Manchester City er staðráðið í að festa kaup á miðjumanninum Elliot Anderson í sumar eftir að félaginu tókst að semja við hann munnlega um kaup og kjör á dögunum.
Anderson hefur verið afar eftirsóttur að undanförnu og var Manchester United sterklega orðað við enska landsliðsmanninn, sem kaus að velja frekar afar sigursælt lið Man City.
City lagði fram kauptilboð í Anderson á dögunum en stjórnendur Forest voru ekki lengi að segja nei. Talið er að tilboðið hafi hljóðað upp á um 60 til 70 milljónir punda auk árangurstengdra aukagreiðslna.
Forest ætlar ekki að sætta sig við minna en 100 eða 105 milljónir fyrir Anderson, þar sem félagið metur hann sem álíka verðmætan leikmann og Declan Rice var þegar Arsenal keypti hann úr röðum West Ham fyrir þremur árum.
27.05.2026 23:53
Man City vinnur Man Utd í baráttu um Anderson




