Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Everton bætist við kappið um Hackney
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Everton er búið að bætast við kapphlaupið um Hayden Hackney, 23 ára miðjumann Middlesbrough.

Hackney vill ólmur spila í ensku úrvalsdeildinni og þarf að skipta um félag til þess eftir að Middlesbrough tapaði í úrslitaleik umspils Championship deildarinnar í maí.

Hackney er 23 ára gamall og hefur meðal annars verið orðaður við Nottingham Forest, Crystal Palace og Manchester United, en Sky Sports segir að Everton sé nú á eftir honum.

Hackney er varnarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig leikið framar. Hann kom með beinum hætti að 14 mörkum í 41 leik með Middlesbrough á nýliðinni leiktíð

Hann lék 13 leiki fyrir U21 landslið Englands sem vann EM í fyrra og er í heildina með 154 keppnisleiki að baki fyrir Middlesbrough þrátt fyrir ungan aldur.

Forest reyndi að kaupa Hackney í janúarglugganum en tókst ekki og hafnaði leikmaðurinn tækifæri til að skipta yfir til Ipswich Town síðasta sumar.

Talið er að Middlesbrough vilji 20 milljónir punda fyrir miðjumanninn sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi.

   27.05.2026 23:59
Everton undirbýr tilboð í Wan-Bissaka

Slapp
banner
banner
banner