04.07.13 - 21:34
Daníel Freyr Jónsson
Nicolas Anelka fyrstu kaup WBA í sumar (Staðfest)

Niolas Anelka.

Mynd: Getty Images

Niolas Anelka.

Mynd: Getty Images
Frakkinn Nicolas Anelka skrifaði í kvöld undir eins árs samning hjá enska úrvalsdeildarliðinu WBA.
Samningur felur í sér möguleika á öðru ári ef báðir aðilar hafa vilja til, en þetta er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til WBA í sumar.
Samningur felur í sér möguleika á öðru ári ef báðir aðilar hafa vilja til, en þetta er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til WBA í sumar.
Anelka þekkir vel til á Englandi, en hann hefur meðal annars leikið með Arsenal, Liverpool, Bolton og Manchester City. Síðast lék hann með Chelsea, áður en hann gekk í raðir Shanghai Shenhua fyrir 18 mánuðum.
Hann varð markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar leiktíðina 2008 - 09 með 19 mörk í 36 leikjum.
Hann varð markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar leiktíðina 2008 - 09 með 19 mörk í 36 leikjum.
