Fotbolti.net
04.07.14 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson

Julian Schieber frá Dortmund til Herthu Berlin (Staðfest)

Julian Schieber.

Julian Schieber.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýski framherjinn Julian Schieber hefur yfirgefið Borussi Dortmund og er genginn í raðir Herthu Berlin.
Schieber lék í tvö ár með Dortmund eftir að hafa komið frá Stuttgart árið 2012. Hann náði aldrei að festa sig í sessi hjá félaginu og lék einungis 35 deildarleik þar sem hann skoraði þrjú mörk.

Er hann annar framherjinn sem yfirgefur Dortmund í sumar á eftir Pólverjanum Robert Lewandowski sem fór til FC Bayern.

Hertha hefur á sama tíma styrkt sig mikið í sumar og er Schieber sjötti leikmaðurinn til að ganga í raðir félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.