Fotbolti.net
04.07.14 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Nuno nýr þjálfari Valencia (Staðfest)

Nuno Espírito Santo, nýr þjálfari Valencia.

Nuno Espírito Santo, nýr þjálfari Valencia.

Canon

Mynd: Getty Images

Valencia hefur ráðið Nuno, fyrrum markvörð Porto, sem nýjan þjálfara liðsins.

Nuno er 40 ára og hefur stýrt Rivo Ave í Portúgal síðan 2012 en hann var kynntur á fréttamannafundi hjá Valencia í dag.
Samningur hans er til eins árs með möguleika á framlengingu.

Nuno tekur við af Antonio Pizzi sem var rekinn í vikunni eftir aðeins sex mánuði við stjórnvölinn. Pizzi stýrði Valencia í undanúrslit Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili.

Valencia hafnaði í áttunda sæti í La Liga og náði ekki að tryggja sér Evrópusæti fyruir komandi tímabil.

Peter Lim, viðskiptamaður frá Singapúr, eignaðist Valencia í maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.