Fotbolti.net
04.07.14 - 10:57
Magnús Már Einarsson

Þórarinn Ingi aftur í ÍBV (Staðfest)

Þórarinn Ingi aftur í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Þórarinn Ingi Valdimarsson mun spila með ÍBV síðari hluta sumars í Pepsi-deildinni en þetta kemur fram á 433.is.

Þórarinn Ingi hefur verið á láni hjá Sarpsborg 08 í Noregi undanfarið eitt og hálft ár en hann mun koma aftur til ÍBV þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí.
,,Ég vildi sjálfur í raun koma heim og hjálpa ÍBV,“ sagði Þórarinn við 433.is.

,,Ég hef bara jákvæða hluti að segja um Noreg og hef notið þess að vera hérna. Eyjamenn eru í vanda staddir og félagið hefur gert allt fyrir mig í gegnum tíðina, vonandi get ég komið heim og hjálpað liðinu.“

Sarpsborg vildi kaupa Þórarinn Inga en félagið náði ekki samkomulagi við ÍBV.

Þórarinn Ingi er 24 ára gamall en hann er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið sem bakvörður, kantmaður og miðjumaður.

Heimild: 433.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.