04.07.16 - 15:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Denis Suarez aftur til Barcelona (Staðfest)

Denis Suarez

Mynd: Getty Images

Denis Suarez

Mynd: Getty Images
Barcelona er búið að festa kaup á Denis Suarez, en hann kemur frá Villareal.
Hinn 22 ára gamli Suarez kemur aftur til Barcelona eftir að hafa samið við Villareal síðasta sumar. Hann var í tvö tímabili hjá B-liði Barcelona áður en hann fór til Villareal.
Barcelona setti kaupákvæði í samning Suarez þegar þeir seldu hann til Villareal og því þarf félagið aðeins að borga 2,73 milljónir punda fyrir hann.
Suarez skoraði fjögur mörk fyrir Villareal á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að enda í 4. sæti í spænsku úrvalsdeildinni.
Hann er uppalinn hjá Celta, en þaðan fór hann til Man. City á Englandi. Hann spilaði aðeins tvo leiki hjá City áður en hann fór til Barcelona.

Heimild: Sky Sports