Fotbolti.net
04.07.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Glenn Murray lánaður til Brighton (Staðfest)

Murray fer aftur til Brighton

Murray fer aftur til Brighton

Canon

Mynd: Getty Images

Glenn Murray, sóknarmaður Bournemouth, hefur verið lánaður til Brighton í Championship-deildinni út komandi tímabil.
Þeir þekkja Murray hjá Brighton, en frá 2008-2011 spilaði hann með liðinu. Hann skoraði 53 mörk í 118 leikjum þegar hann spilaði með liðinu síðast.

Hann mun nú snúa aftur til Brighton með það að markmiðið að hjálpa liðinu upp í úrvalsdeild. Hann fer til Brighton eftir aðeins eitt tímabil hjá Bournemouth.

Murray lék aðeins tíu leiki með Bournemouth eftir að hafa komið frá Crystal Palace og skoraði þrjú mörk í þeim leikjum.

Brighton voru lengi vel taplausir í Championship-deildinni á síðasta tímabili, en á endanum töpuðu þeir í umspilinu um að komast upp í úrvalsdeild gegn Sheffield Wednesday.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.