Það átti sér stað furðuleg uppákoma undir lok leiks Fjölnis og Fylkis í Grafarvogi í dag.
Fjölnir skoraði en það vissi enginn hvort að markið fengi að standa eða ekki.
„Hvað í fjandanum gerðist hérna!? Fjölnismenn taka horn og Sigurpáll skallar boltanum í netið. Á nákvæmlega sama tíma flautar Vilhjálmur til leiksloka. Markið hlýtur að standa. Læt vita innan skamms," skrifaði Kristófer Jónsson í beinni textalýsingu.
Kristófer vissi ekki hvort að markið stæði, en fékk það svo staðfest eftir leikinn að það fengi að standa.
Vægast sagt furðulegt. Fylkismenn tóku ekki einu sinni miðju.
Jæja (Staðfest) að þetta var mark. Rosalega undarleg vinnubrögð hjá Villa. Skildi enginn neitt. pic.twitter.com/2jYSWbUOEh
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) July 4, 2020
Athugasemdir