sun 04. júlí 2021 18:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ramos skrifar undir tveggja ára samning við PSG
Mynd: Getty Images
Samkvæmt Fabrizio Romano á Twitter mun Sergio Ramos skrifa undir samning á næstu dögum við PSG til tveggja ára.

Samningur Sergio Ramos við Real Madrid rann út eftir síðustu leiktíð og hefur hann m.a. verið orðaður við Manchester United.

Nú lítur allt út fyrir að hann sé að fara til PSG.

Sagt er að PSG muni staðfesta komu hans á næstu tveimur vikum, þá eru Achraf Hakimi, bakvörður Inter og Gianluigi Donnarumma markvörður AC Milan og ítalska landsliðsins einnig að ganga til liðsins á næstu vikum.

Hakimi og Donnarumma munu skrifa undir samning til 2026.


Athugasemdir
banner
banner
banner